Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Um stofnunina

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er rannsóknastofnun innan Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Stofnunin var sett á laggirnar í október 2001 í tengslum við 90 ára afmæli Háskóla Íslands og evrópska tungumálaárið. Stofnunin hefur notið þess heiðurs að bera nafn Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrum forseta Íslands og notið mikilvægrar liðveislu hennar í uppbyggingarstarfi stofnunarinnar.

Vigdís Finnbogadóttir hefur um árabil gegnt starfi velgjörðarsendiherra tungumála hjá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Jafnframt kenndi hún erlend tungumál um árabil í framhaldsskólum og við Háskóla Íslands auk þess sem hún hefur stutt tungumálakennslu í verki á margvíslegan hátt.

Stofnunin fær árlegt framlag frá Háskóla Íslands einnig hefur stofnunin notið velvildar fjölmargra innlendra og erlendra stuðningsaðila við að hrinda ákveðnum verkefnum í framkvæmd. Sjá nánari upplýsingar um Styrktaraðila Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.