Alþjóðleg tungumálamiðstöð
![]() |
Á undanförnum árum hefur verið unnið ötullega að því að reisa sérstaka byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur sem mun hýsa alþjóðlega tungumálamiðstöð og alla kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Með tilkomu Alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar yrði starfsemi stofnunarinnar efld til mikilla muna.
Alþjóðleg tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands hlaut í nóvember 2011 samþykki Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, til að starfa undir formerkjum hennar. Í vottun UNESCO felst mikil viðurkenning á störfum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og stuðningur við framtíðaráform hennar. Efnt verður til samkeppni um hönnun byggingar fyrir tungumálamiðstöðina og aðra starfsemi stofnunarinnar og er stefnt að því að hún verði tilbúin til notkunar árið 2014.
Í tungumálamiðstöðinni verða sérstök heimasvæði fyrir þau 14 tungumál, sem kennd eru við Háskóla Íslands, auk sérhæfðs bókasafns og gagnasmiðju með efni sem tengist tungumálakennslu og menningarfræðslu. Þar verður einnig aðstaða fyrir fundi og ráðstefnuhald og fyrir samstarf við erlenda og innlenda gestafræðimenn.
Einnig verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur sem verður glæsilegur vettvangur fyrir erlend tungumál og menningu og allt sem lýtur að jákvæðum samskiptum Íslands við erlendar þjóðir. Þar verða haldnar sýningar og aðrir skipulagðir viðburðir sem tengjasta ólíkum menningar- og málsvæðum. Hér geta gestir og gangandi fræðst um og upplifað erlend tungumál og skyggnst inn í ólíka menningarheima. Áhersla verður lögð á listræna og lifandi framsetningu og margmiðlun, m.a. í sýndarveruleika. Einnig verða haldnar sýningar og skipulagðir viðburðir sem tengjast ólíkum menningar- og málsvæðum.
Í tungumálamiðstöðinni verður fyrirlestrarsalur tileinkaður Vigdísi þar sem hægt verði að fræðast um líf Vigdísar og störf, ekki síst í þágu tungumála.





